Fara beint í efni

Skilmálar

Skilmálar YndisLea

Hér finnur þú allt sem gildir þegar þú pantar te-blöndur eða kaupir gjafakort á yndislea.is.

Síðast uppfært 27. nóvember 2026

01Seljandi

Seljandi er YndisLea. Skilmálar þessir gilda um öll kaup á vörum og gjafakortum á vefnum yndislea.is og eru ásamt pöntun þinni staðfesting á samningi milli þín og seljanda.

Nafn
Lea Karitas Gressier
Kennitala
180391-3049
Heimilisfang
Hofsvallagata 49
Staður
107 Reykjavík
Netfang
yndislea@gmail.com
Sími
770 3104

02Pantanir

Pöntun er staðfest þegar hún hefur verið greidd og þú hefur fengið staðfestingu í tölvupósti. Við áskiljum okkur rétt til að hætta við pöntun, til dæmis ef vara er uppseld eða verð er rangt skráð. Þá endurgreiðum við að fullu.

03Verð og greiðsla

Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK). Seljandi er ekki á virðisaukaskattsskrá og því er ekki innheimtur virðisaukaskattur. Sendingarkostnaður bætist við ef við á og kemur skýrt fram áður en greitt er.

Greiða má með Visa og Mastercard greiðslukortum. Greiðslan fer fram á öruggri greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar. Kortaupplýsingar fara beint þangað dulkóðaðar; YndisLea sér þær aldrei og geymir þær ekki.

Einnig má greiða með gjafakorti YndisLea, að hluta eða öllu leyti. Ef inneignin dugar ekki fyrir allri pöntuninni er mismunurinn greiddur með korti.

04Afhending

Þú getur valið um að sækja pöntunina eða fá hana senda heim.

  • Sækja: Á veitingastaðnum Mama Reykjavík, Bankastræti 2, 101 Reykjavík
  • Heimsending: Sent með Dropp innanlands. Sendingar til útlanda eftir samkomulagi, hafðu samband
  • Afhendingartími: Pantanir eru sendar af stað innan 3 virkra daga
  • Sendingarkostnaður: 790 kr. innanlands með Dropp. Til útlanda: verð samkvæmt fyrirspurn

Ef afhending tefst látum við þig vita sem fyrst. Áhætta af vörunni flyst til þín þegar þú hefur tekið við henni.

05Réttur til að falla frá kaupum og vöruskil

Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur þú 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupum án þess að gefa upp ástæðu. Láttu okkur vita með tölvupósti á yndislea@gmail.com innan þess tíma.

Þar sem te er matvara er aðeins hægt að skila óopnuðum vörum í upprunalegum, heilum umbúðum. Ekki er hægt að skila vöru sem innsigli hefur verið rofið á eftir afhendingu.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að við fáum tilkynninguna og vöruna til baka. Endurgreitt er inn á sama greiðslukort og greitt var með. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöru til baka.

06Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara er gölluð, skemmd eða ekki það sem þú pantaðir, hafðu samband sem fyrst og við sendum nýja vöru eða endurgreiðum að fullu, þér að kostnaðarlausu, í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003.

07Tilboð

Tilboð gilda á meðan birgðir endast og á þeim tíma sem tilgreindur er við hvert tilboð. Tilboð eins og „3 fyrir 2“ reiknast sjálfkrafa í körfunni og þá er ódýrasta varan í hverjum hópi frí. Aðeins eitt slíkt tilboð gildir í hverri pöntun. Afsláttarkóða má nota til viðbótar nema annað sé tekið fram.

08Gjafakort

Gjafakort YndisLea eru seld á yndislea.is og send kaupanda í tölvupósti strax eftir greiðslu, með fimm stafa kóða og hlekk til að prenta kortið.

  • Gildistími: gjafakort gildir í fjögur ár frá kaupdegi. Gildistíminn stendur á kortinu.
  • Notkun: kóðinn er sleginn inn í körfunni á yndislea.is. Nota má kortið í fleiri en einni pöntun þar til inneignin er búin.
  • Inneign: gjafakorti er ekki hægt að skipta fyrir peninga. Ef pöntun sem greidd var með gjafakorti er endurgreidd fer upphæðin aftur inn á kortið.
  • Glatað kort: farðu vel með kóðann, því hver sem hefur hann getur notað kortið. Ef kort glatast getum við sent það aftur á netfang kaupanda.
  • Að falla frá kaupum: kaupandi getur fallið frá kaupum á ónotuðu gjafakorti innan 14 daga frá kaupum og fengið það endurgreitt.

09Persónuvernd

Við förum með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál. Nánar um hvaða upplýsingar við vinnum og hvers vegna í persónuverndarstefnu okkar.

10Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa í sátt má leita til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Að öðrum kosti skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

11Breytingar

Við kunnum að uppfæra skilmálana. Þeir skilmálar gilda sem voru í gildi þegar pöntun var gerð.