Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Hvernig við förum með upplýsingarnar þínar, á mannamáli.
Síðast uppfært 27. nóvember 2026
01Trúnaður
Allar persónuupplýsingar eru trúnaðarmál og verða ekki gefnar eða seldar þriðja aðila. Við vinnum aðeins þær upplýsingar sem þarf til að afgreiða pöntun, svara þér og senda fréttabréf ef þú hefur skráð þig. Stefnan byggir á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
02Ábyrgðaraðili
- Nafn
- Lea Karitas Gressier
- Kennitala
- 180391-3049
- Heimilisfang
- Hofsvallagata 49
- Staður
- 107 Reykjavík
- Netfang
- yndislea@gmail.com
03Hvaða upplýsingar og hvers vegna
- Pantanir: nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang fyrir heimsendingu og hvað þú pantaðir, til að afgreiða og afhenda pöntunina.
- Gjafakort: nafn og netfang kaupanda, og nafn viðtakanda og kveðja ef þau eru skrifuð, til að senda kortið og halda utan um inneignina.
- Hafa samband: nafn, netfang og skilaboðin þín, til að svara þér.
- Póstlisti: netfangið þitt, til að senda fréttir og tilboð. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
- Aðgangur: ef þú stofnar aðgang geymum við netfang og þær upplýsingar sem þú setur inn.
04Kortaupplýsingar
Greiðslukortaupplýsingar fara beint og dulkóðaðar til greiðsluþjónustunnar sem sér um greiðsluna. Við sjáum þær aldrei og geymum þær ekki.
05Þjónustuaðilar
Til að reka vefinn notum við trausta þjónustuaðila sem vinna upplýsingar eingöngu fyrir okkar hönd og samkvæmt okkar fyrirmælum: hýsingu vefsins (Vercel), gagnagrunn (Supabase), tölvupóstþjónustu (Resend) og greiðsluþjónustu fyrir kortagreiðslur. Við notum nafnlausa vefmælingu (Cloudflare Web Analytics) sem setur engar vefkökur.
06Vefkökur
Vefurinn notar hvorki auglýsinga- né rakningarkökur. Aðeins nauðsynleg geymsla í vafranum er notuð, til dæmis til að halda þér innskráðri/innskráðum.
07Hve lengi
Upplýsingar um pantanir og gjafakort geymum við eins lengi og lög um bókhald krefjast (sjö ár). Skilaboð og netföng á póstlista geymum við þar til þú biður um að þeim sé eytt eða afskráir þig.
08Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að andmæla vinnslu. Sendu okkur línu á yndislea@gmail.com. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar.
Sjá einnig skilmála okkar.