
og er á bakvið jurta te-blönurnar YndisLea.

Ég trúi því að líkaminn okkar er kraftaverk
Hann lætur okkur alltaf vita ef við erum í ójafnvægi og ef við tökum vel eftir, þá leiðbeinir hann okkur við að ná jafnvægi á ný.
Plönturíkið getur hjálpað okkur við að næra og örva náttúrulega heilun líkamans. Bæði það að vera í náttúrunni og eins að neita afurða úr plönturíkinu.

Það er þessi tenging sem kveikti ástríðu mína fyrir jurtum.
Með heitan tebolla í hönd, hef ég skapað mér hefð sem tengir mig bæði við náttúruna og við líkama minn. Þetta er stund þar sem ég staldra við, anda og næri sjálfa mig.
Hver jurt ber með sér sína eigin tíðni og eiginleika; sumar róa, aðrar hreinsa, styrkja eða gefa orku. Þær tala sínu eigin tungumáli, ef við gefum okkur tíma til að hlusta og skilja.
Hugmyndin að telínunni minni varð til eftir 15 ára reynslu af því að vinna með jurtir, til heilunar, vellíðunar og einfaldlega til að skapa notalegheit.
Ég hef drukkið te með vinum, ein í morgun- eða kvöldsólinni og notað jurtir fyrir eigið heilsufar.
Í gegnum þessa forvitni hef ég tengst náttúrunni, á Íslandi og víða um heiminn.
Ég trúi því að hreinleiki fæðu sé lykilatriði.
Þess vegna vel ég eingöngu lífrænar og villtar jurtir, svo þú fáir það besta í bollann þinn á hverjum degi, jurtir án aukaefna og unnar með virðingu fyrir náttúrunni.
Ég trúi því að hver jurt sé kraftaverk náttúrunnar. Með þessu kraftaverki vil ég búa til teblöndur sem næra bæði líkama og sál.
Jurtirnar sem ég nota koma víðs vegar að úr heiminum — jurtir sem hafa verið nýttar af forfeðrum og formæðrum okkar um aldir.
Þær hafa verið notaðar í kínverskri læknisfræði, Ayurveda, indíánamenningu, grískri og vestrænni jurtafræði. Þessi aldagamla viska lifir áfram í hverri blöndu.

Markmið mitt er einfalt
Að hver og einn finni sína eigin tengingu við jurtirnar.
Að þú finnir það te sem hentar þér í þínu lífi, hvort sem það veitir ró, styrk, dýpt, gleði eða heilun. Því te er ekki bara drykkur. Það er núvitund. Hlýr bolli sem minnir okkur á að hamingjan býr í smáatriðunum, í tengingunni við sjálf okkur og náttúruna.